Kór Lindakirkju
Tenglar sem tengjast kórnum - söng og trúariðkun
Könnun
Skoðar þú þessa síðu oft??






Bloggsíður kórfélaga
Myndir af Kórfélögum
09.09.2008 16:06:29 / korlindakirkju

Æfingar eru hafnar!!!!

Komið þið öll sæl og blessuð!
Þá eru æfingar haustsins víst hafnar, fyrsta æfing var á fimmtudaginn var og fyrsta messa vetrarins því búin.
Næsta æfing er á fimmtudaginn núna, þann 11.09. - vá ELLEFTA SEPTEMBER!!!! Hey - allir að mæta!

kv. Stjórnin.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 14:01:01 / korlindakirkju

Danmerkurferðin - drög að plani

Góðan daginn félagar,

hér að neðan fylgir dagskráin eins og hún lítur út í dag ásamt haug af upplýsingum, settum saman af Ástu Beck:

Kórinn til Köben

·         Hér fyrir neðan má finna tímasetningar á æfingum kórsins og öðrum skipulögðum uppákomum.  Að sjálfsögðu ætlum við að eyða skemmtilegum tíma saman, syngja og hafa gaman.

·         Kórfélagar koma sér á eigin ábyrgð út á flugvöll.   Bent er á flugrútuna sem stoppar 05:15 á Select við Smáralind.  Hún á þá að vera komin um kl. 6 út á flugvöll.   Tíminn e.t.v. í styttra lagi en ætti að ganga ef ekki er áætlað að versla mikið í fríhöfninni J Ekki þarf að bóka far með flugrútunni fyrirfram – farmiðinn kostar 1300.-  Minnt er á að stuðið er alltaf mest aftast í rútunni!  Rútuna má líka taka frá öðrum stoppistöðvum m.a. BSÍ – sjá www.flybus.is

·         Fatnaður við guðsþjónustu 4. maí verður í anda ferminganna – verðum sumarleg  J...og ekki gleyma möppunum.  Ekki er verra að hafa með útprentaðan listann yfir kórfélaga svo hægt sé að nálgast gsm. síma.

·         Allt lín er á gistiheimilinu (handklæði og þess háttar).

·         Heimilisfangið á gistiheimilinu er: Dansk folkeferie, Karlslunde Strandvej 87, 2690 Karlslunde.  http://www.folkeferie.dk/da/Ferie-i-Danmark/Sjaelland/Karlslunde-Strand/

·         Gengið:  DKK à15,35 ISK

·         Veðurspá:  weather.yahoo.com

Mið     Partly clouded 16°C
Fim      PM light rain 14°C
Fös      heavy rain 15°C
Lau      partly cloudy 16°C
Sun.     mostly sunny  17°C


 

 

·         Miðvikudagurinn 30. apríl.

7:15 Fyrsti hópurinn flýgur út miðvikudaginn 30. apríl.  19 manns í þessum hóp.

12:25 Lendum við í Köben.  Rúta mun sækja hópinn á flugvöllin og keyra okkur til Karlslunde á gistiheimilið.

17:00  Æfing í Strandkirke

20:00  Æfing hjá kirkjukórnum í Strandkirke.  Hittum þar kórfélaga og hitum upp dönskuna.

Til minnis:

E.t.v. mætti fara í gönguferð til Solröd strandgade.  Líka hægt að taka strætó þangað.  Skemmtileg göngugata. Café Cosy.

Muna að versla í matinn J af því allt er lokað á fimmtudaginn.

·         Fimmtudagur 1. maí

2 hópar frá kórnum koma út

20:00  Æfing

Til minnis:

Sennilega eru verslanir lokaðar 1. maí.  Það er hins vegar búið að opna Tívolí og það er opið þennan dag.
Ganga um söguslóðir?

·         Föstudagur 2. maí

17:00 Æfing í Strandkirke

19:00  Sameiginlegur kvöldmatur

·         Laugardagur 3. maí

13:00 Samvera par excellance - Lagt af stað í ævintýraferð kórs Lindakirkju.   

Æfing að því loknu

·         Sunnudagur 4. maí

9:00  Guðsþjónusta í Strandkirke

11:00 Guðþjónusta í Strandkirke

22:50 Flogið heim

Til minnis:

Lokað er í flestum búðum á sunnudögum.  Þó er opið í stórum verslunarmiðstöðvum fyrsta sunnudag hvers mánaðar – eins og 4. maí er J  M.a. opið í Fields og í Fisketorvet.


 

Lestarsamgöngur. 

Margir eru mjög kunnugir í Kaupmannahöfn en hér eru nokkrir molar sem gott er að vita:

Mjög einfalt er að taka lest frá Kastrup til Karlslunde.  Lestin er fyrst tekin frá Kastrup á Hovedbanegård.  Þar þarf að skipta og taka svokallað S-tog     til Karlslunde.  Línan sem gengur til Karlslunde heitir E-lína.  Taka þarf því línu E sem er á leið til Köge.

Lína E  gengur á milli Hilleröd og Köge og stoppar í Karlslunde.   Þannig að ef við erum á leið til Karlslunde tökum við línu E á leið til Köge og ef við erum á leið til Kaupmannahafnar tökum við línu E á leið til Hilleröd.   Lestin gengur á 10 mínútna fresti á daginn. 

Borgað er í S-lestina eftir svæðum eins og þekkist víða.   Karlslunde er í zone 7 meðan miðbærinn er í zone 1.  Eftir að búið er að greiða fyrir ferðalag yfir t.d. 7 svæði (zoner) skiptir ekki máli hvort þið notið S-tog, Metro eða strætó.  Þægilegt er að kaupa klippikort (hægt að kaupa í sjálfsala) og síðan er klippikortið stimplað í þar til gerðri vél á lestarstöðinni eftir því hvað þið ætlið í gegnum mörg svæði.  Ef þið eruð í vafa hve mörg svæði þið farið í gegnum (t.d. ef ykkar stöð er á mörkum tveggja svæða) telur hærri talan.  Þannig að ef ykkar stöð er á mörkum svæðis 6 og 7 – á að miða við 7 svæði.  

Gott er að vita að ef þið hafið „stimplað“ fyrir ferðalag um t.d. 2 svæði – getið þið ferðast ótakmarkað innan þess svæðis í 1 klukkutíma.  Það þarf ekki að borga aftur.  Miði (stimplun)  um ferðalag innan 7 svæða gildir í 2 klst. 


 

Bakken.

13.00

Friluftsscenen  

Nordiske Mesterskaber

Få svaret på, hvilket land, der der det dygtigste i Norden

Læs mere

13.00

I gader og stræder  

Allerød Tambourkorps

 

15.00

Pjerrots Hus  

Bakkens Pjerrot

Børnenes gode ven Pjerrot optræder på den lille scene foran Pjerrots hus

Læs mere

16.00

Pjerrots Hus  

Bakkens Pjerrot

Børnenes gode ven Pjerrot optræder på den lille scene foran Pjerrots hus

Læs mere

16.30

Friluftsscenen  

Bakkedyrene

Oplev de 4 festlige og fornøjelige Bakkedyr på Friluftsscenen

Læs mere

17.00

Pjerrots Hus  

Bakkens Pjerrot

Børnenes gode ven Pjerrot optræder på den lille scene foran Pjerrots hus

Læs mere

18.30

Restaurant Nybo  

Visesang i Restaurant Nybo

Knud Balck Jensen synger, akkompagneret af Grete Hermansen, gamle Osvald Helmuth viser

Læs mere

19.00

Ølgod  

Coffee Shop

Når de tre rutinerede herrer fra Coffee Shop går på scenen, er det svært at sidde stille. Med musik fra de glade 60'ere og frem til i dag er man helt sikker på at få festen til at køre

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 08:19:19 / korlindakirkju

Æfingin á eftir heima hjá Vigdísi

Góðan dag kæru félagar,

hún Vigdís ætlar að hýsa æfinguna á eftir eins og ykkur er kunnugt um.  Hún býr við Bústaðaveg 89. 
Æfingin hefst kl. 14.00 og lýkur kl. 17.00.

Kv. Valdi

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2008 17:33:45 / korlindakirkju

Tilkynning frá Samkór Reykjavíkur!!!:::::::

Komið þið sæl og blessuð kæru vinir,

hér eru upplýsingar frá henni Erlu Sigurbjartsdóttur í Samkór Reykjavíkur vegna skemmtikvöldsins á föstudaginn:

Komið þið sælir félagar
 
Nú fer senn að líða að skemmtikvöldinu hjá okkur í Samkór Reykjavíkur. Það verður þann 18. apríl næstkomandi í félagsheimili Seltjarnarness. 
Við erum á fullu í að undirbúa kvöldið og langar okkur að minna ykkur á að það væri gott ef við gætum fengið fjölda þeirra sem ætla að koma frá ykkar kórum sem fyrst, í seinasta lagi 1. apríl eftir viku.
 
Þeir kórar sem koma til okkar eru: Landsvirkjunarkórinn, Karlakór Kópavogs , Skagfirska Söngsveitin og félagar úr Kirkjukór Lindakirkju. Við erum að vonast eftir um 150 manns á þessa skemmtun hjá okkur.
 
Dagskráin er sem fyrr, að allir kórar munu hita upp saman. Síðan mun hver kór stíga á stokk og syngja 1 - 2 lög. Síðan er matur, og að lokum eitt lítil skemmtiatriði frá hverjum og einum kór.
 
Það verður síðan slegið upp diskóteki undir stjórn Bjarna Töframanns þegar líða tekur á kvöldið.



Síðan kom þetta hér til nánari upplýsinga:

Nú líður að skemmtikvöldinu okkar í Samkór Reykjavíkur á föstudaginn. Húsið opnar kl: 19.00 og mun formleg dagskrá hefjast um 19.40.
 
Skagfirska söngsveitin mun hefja dagskránna upp úr 20.00 því nokkrir meðlimir sveitarinnar þurfa að vera mættir annarsstaðar en vilja koma og syngja fyrir okkur. Eftir það, kemur hver kórinn á fætur öðrum og syngur 2- 3 lög.
 
Matur verður rétt eftir 21.00 og eftir mat, munu kórarnir koma með skemmtiatriði.
 
Töframaðurinn Bjarni sér síðan um danstónlist fram á nótt.
 
Hlökkum til að sjá ykkur og vonandi eigum við eftir að eiga skemmtilega kvöldstund öll saman.

Við sjáumst svo á æfingunni annað kvöld þar sem við meðal annars búum okkur undir þetta skemmtikvöld.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 10:49:44 / korlindakirkju

Æfing á fimmtudag - skemmtun á föstudag - messa á sunnudag

....og hver sagði að það væri ekkert um að vera???? 

Mig langar að byrja á því að þakka öllum kærlega fyrir flotta frammistöðu í fermingunum undanfarið - nú getum við látið okkur hlakka til komandi verkefna.  Á fimmtudaginn kemur verður æfing eins og venjulega í safnaðarheimilinu. Þá munum við væntanlega rúlla yfir það helsta fyrir messuna á sunnudag, æfa fyrir Danmerkurferðina og síðast en ekki síst fyrir skemmtikvöld Samkórs Reykjavíkur á föstudagskvöldið.
Á föstudagskvöldið verður sumsé þetta skemmtikvöld hjá vinum okkar í Samkór Reykjavíkur og þangað ætlum við að mæta og syngja fyrir þau og með þeim nokkur lög.
Á sunnudag verður síðan síðasta messa vetrarins hjá okkur í Salaskóla.  Ég vona að sem flestir taki þátt með okkur í henni og við kveðjum veturinn með miklum stæl.

Sjáumst á fimmtudagskvöld,
kv. Formaðurinn

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 13:47:17 / korlindakirkju

Diskar með útvarpsmessu!!!! Á einhver hraðvirka tölvu.....??

Komið þið sæl,

það er auðvitað æfing í kvöld.  Ég vil þakka ykkur fyrir samveruna síðustu helgi og get sagt að útvarpsmessan hefur fengið hreint ágætar móttökur. Ég fékk upptöku í miklum gæðum hjá tæknimanninum sem var að senda hana út. Ég hef alla vikuna ætlað að koma þessu á diska en mér hefur ekki unnist til þess tími og ég efast um að það náist fyrir kvöldið.  Á einhver í kórnum hraðvirka fartölvu sem hann getur komið með - að ég tali ekki um hvort viðkomandi geti þá sömuleiðis komið með diska til þess að brenna fyrir alla - við borgum að sjálfsögðu fyrir diskana....

Leyfið mér að heyra í ykkur með það.

kv. Valdi

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 18:25:43 / korlindakirkju

Góðan daginn - sálmar fyrir sunnudaginn

Komið sæl,

fyrir sunnudaginn næsta, fyrir sumsé útvarpsmessuna sem þá verður send beint úr Salaskóla, eru eftirfarandi sálmar og sönglög á dagskrá:
  1. páskalag…bjöllurnar hljómar….
  2. Drottinn er minn hirðir
  3. stjörnur og sól
  4. hallelujah…..#578
  5. Ég á mér hirði
  6. Þér lof vil ég ljóða

Þetta er sem sagt listinn sem ég fékk sendan frá Keith.  Hittumst heil á æfingu annað kveld.

kv. Formaðurinn

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 19:55:00 / korlindakirkju

Þetta er nú frekar leiðinlegt...

en því miður hefur þetta bara ekki gengið neitt....!!!!!!!!!!!!GARRRRGGG...!!  Við verðum bara að treysta á mátt okkar og megin á morgun og vona að þetta gangi eftir helgina.
Biðst forláts á þessu kæru félagar. 
Hlakka til að sjá ykkur á morgun!!

kv. Formaðurinn

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 23:36:09 / korlindakirkju

Diskarnir verða tilbúnir fyrir æfinguna - og tilkynning frá Samkór Reykjavíkur.

Jæja krakkar,

diskarnir verða tilbúnir á morgun. Þið fáið þá á æfingunni annað kvöld.  Það merkir þá að þið getið gert alla heima hjá ykkur sturlaða á föstudaginn þegar þið verðið búin að syngja þetta annað kvöld og æfið svo heima á föstudag með græjurnar í botni...hehehehehehe. Svo eru auðvitað fyrstu fermingarnar á laugardaginn, mikið ofboðslega verður gaman hjá okkur þá...er það ekki?
Annað mál. Ég fékk póst frá Samkór Reykjavíkur nú í gær.  Hann hljóðaði nákvæmlega svona:
Nú fer senn að líða að skemmtikvöldinu hjá okkur í Samkór Reykjavíkur. Það verður þann 18. apríl næstkomandi í félagsheimili Seltjarnarness. 
Við erum á fullu í að undirbúa kvöldið og langar okkur að minna ykkur á að það væri gott ef við gætum fengið fjölda þeirra sem ætla að koma frá ykkar kórum sem fyrst, í seinasta lagi 1. apríl eftir viku.
 
Þeir kórar sem koma til okkar eru: Landsvirkjunarkórinn, Karlakór Kópavogs , Skagfirska Söngsveitin og félagar úr Kirkjukór Lindakirkju. Við erum að vonast eftir um 150 manns á þessa skemmtun hjá okkur.
 
Dagskráin er sem fyrr, að allir kórar munu hita upp saman. Síðan mun hver kór stíga á stokk og syngja 1 - 2 lög. Síðan er matur, og að lokum eitt lítil skemmtiatriði frá hverjum og einum kór.
 
Það verður síðan slegið upp diskóteki undir stjórn Bjarna Töframanns þegar líða tekur á kvöldið.
 
Við vonum að við sjáum sem flesta frá ykkur þetta kvöld.

Þannig endaði sá póstur.  Við erum einhver búin að láta vita af okkur, en það væri gaman að fá sem flesta með - auðvitað.

Sjáumst annað kvöld.

kv. Formaðurinn

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 23:15:02 / korlindakirkju

Fermingarnar framundan

Sæl verið þið öll!!

Nú fer að styttast verulega í fermingarnar.  Eins og þið vitið eru diskar í framleiðslu og við megum örugglega reikna með þeim á morgun, miðvikudag....!!!! Fylgist með hér á síðunni okkar.....

Kv. formaðurinn

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 23:44:28 / korlindakirkju

Texti fyrir afmælisdrenginn - við páskasálminn

Komið þið sæl og blessuð öll - og hjartanlega til hamingju með afmælis Þorgils Hlynur!!! Sem betur fer hefur þú farið þokkalega mikinn í athugasemdum á síðunni.  Í tilefni af því og í tilefni af afmæli þínu í dag fann ég fyrir þig textann sem þú varst að biðja um.....bendi þó á að þær innsláttar- og stafvillur sem leynast kunna í textanum eru ættaðar frá öðrum en mér...

Hear the bells ringing
They´re singing that you can be born again
Hear the bells ringing
They´re singing Christ is risen from the dead

The angel up on the tombstone
Said he has risen, just as he said
Quickly now, go tell his disciples
That Jesus Christ is no longer dead

Joy to the word, he has risen, hallelujah
He's risen, hallelujah
He's risen, hallelujah

Hear the bells ringing
They're singing that you can be healed right now
Hear the bells ringing, they're singing
Christ, he will reveal it now

The angels, they all surround us
And they are ministering Jesus power
Quickly now, reach out and receive it
For this could be your glorious hour

Joy to the world, he has risen, hallelujah
He's risen, hallelujah
He's risen, hallelujah, hallelujah

The angel up on the tombstone
Said he has risen, just as he said
Quickly now, go tell his disciples
That Jesus Christ is no longer dead

Joy to the world, he has risen, hallelujah
He's risen, hallelujah
He's risen, hallelujah
Hallelujah


Kv. Valdi

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.03.2008 09:32:07 / korlindakirkju

Langt er orðið síðan...

ég setti inn færslu á þessa síðu.....en það er nú svo að nóg hefur verið að gera....gott fólk - nú fer að færast fjör í þennan leik.  Páskarnir eru alveg á næsta leyti, og á morgun munum við mæta tímanlega til æfinga.  Í næstu viku hittumst við ekki fyrr en á páskadagsmorgun. Því þurfum við að vera dugleg að fletta upp þessum sálmum í sálmabókinni á netinu, tengill hér til hliðar, og syngja með rafrænum undirleik heima í stofu, heimilisfólki okkar til ánægju...hehe

Ég hef nú þegar komið gögnum til sr. Guðmundar Karls sem hann ætlar að brenna á diska fyrir okkur.  Um er að ræða upptökuna hennar Vigdísar af einni æfingunni okkar í fyrra í Hjallakirkju þegar fermingargeimið stóð sem hæst...mjög fín upptaka.  Vonandi næst þetta fyrir fyrramálið, en að öðrum kosti mun ég setja inn færslu hér á síðuna um það hvernig best er að hafa hlutina í framhaldinu - hvort þið getið sótt upptöku til mín eftir helgina, hvort ég kem henni til ykkar eða hvað...?? Við sjáum til.

Eigið góðan dag í þessu fallega veðri. Sjáumst í fyrramálið.

kv. Formaðurinn

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 08:58:29 / korlindakirkju

Skemmtikvöldið hjá Samkór Reykjavíkur

Komið sæl og takk fyrir síðast,

ég minni á að ég setti inn færslu um daginn vegna fyrirhugaðs skemmtikvölds Samkórs Reykjavíkur þann 18. apríl nk.  Hún var einhvern veginn á þá leið að:
Það verður haldið þann 18. apríl nk í Félagsheimili Seltjarnarness. Þangað munu nokkrir kórar af höfuðborgarsvæðinu mæta. Húsið opnar kl. 19 og formleg dagskrá hefst kl. 20. Dagskrá kvöldsins er á þá leið að allir kórarnir munu hita upp og syngja saman undir stjórn Keith Reed. Síðan myndi þá hver kór stíga á stokk og syngja 1-2 lög. Einnig getur hver kór komið með skemmtiatriði, og aldrei að vita nema formaðurinn taki fílinn á þetta.....ha??  Boðið verður upp á kjúklingasalat, osta og brauð. Barinn verður opinn og drykkir seldir á vægu verði. Að lokinni dagskrá verður slegið upp balli og dansað fram á nótt.

Aðgangseyrir er 1.500.- á mann.  Leyfið mér að heyra í ykkur kæru félagar hvort þið hyggist kíkja á þetta því að ég þarf að láta hana Erlu vinkonu okkar vita í byrjun næstu viku. Ef við komum ekki þá bjóða þau einhverjum öðrum...(sálfræði sem dugar til þess að sprengja meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur skipti eftir skipti...hahahahaha).

Enn sem komið er hefur einn kórfélagi sent mér póst til þess að staðfesta áhuga sinn á því að vera með.  Þú veist hver þú ert - þið hin verðið að drífa ykkur því að þau ætla sér að sjálfsögðu að fylla salinn af gestum.

kv. Formaðurinn.


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 13:01:58 / korlindakirkju

Herbergjaskipan í Danmörku!!!!!

Góðan daginn gott fólk,

ég er búinn að setja upp hugmyndir að því hvernig við getum skipt okkur í herbergi í Karlslunde.  Skoðið þetta og sendið mér endilega athugasemdir ef þið hafið einhverjar.  Hafið í huga að þið sendið mér þær á mitt persónulega netfang, valdi1@simnet.is og það veit enginn af því hver það er sem sendir athugasemdirnar.  Ég set listann upp með þeim hætti að ég reikna með að einhver eða einhverjir eigi eftir að bætast í hópinn.  Hafið það í huga. Þess vegna eru mismargir í herbergi.

Kv. Formaðurinn

ps. eins verðið þið nú að skoða það hvort þið hafið áhuga á skemmtikvöldi Samkórs Reykjavíkur sem ég hef áður auglýst á þessari síðu.  Svar verður að koma í síðasta lagi á æfingunni á morgun.
Rooms
Lilja Michelsen
Sigurður Þorsteinsson 1
Jóhanna Elíasdóttir  
Ingimar Ingimarsson
 
Anna Sigríður Hauksdóttir
María Kristín Lárusdóttir 2
Inga Dóra Helgadóttir
Vigdís Stefánsdóttir
 
Ólöf Ásgeirsdóttir, gjaldkeri
Ásta Guðrún Beck 3
Þórunn Siemsen, ritari
Erna Jóhannsdóttir
Herdís Kristín Brynjólfsdóttir
Auður Árnadóttir 4
Edda Guðmundsdóttir
Olga Dagmar Erlendsdóttir
 
Þorvaldur Daníelsson 5
Einar Bragi Bjarnason  
Keith Reed 6
Ásta Bryndís Schram  
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson 7
Þorgils Hlynur Þorbergsson  



» 8 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 09:15:46 / korlindakirkju

Fréttir af undirbúningi Danmerkurferðar

Góðan daginn vinir,

í gær fékk ég póst frá Karlslunde - þar er allt klárt með gistinguna.  Ég ætla að setja inn síðar í dag eða í fyrramálið mögulega uppröðun í herbergi.  Ég er sumsé með 7 herbergi fyrir okkur, möguleiki er hins vegar á því að við þurfum það áttunda.  Þetta eru yfirleitt fjögurra manna íbúðir þar sem tveir og tveir eru saman í herbergjum, en við förum auðvitað yfir þetta í ró og næði.  
    Þið sem eigið eftir að senda mér myndir af ykkur, að ég tali ekki um aðrar upplýsingar eins og netfang og símanúmer - auk kennitölu auðvitað - gerið það sem allra fyrst.  Bæði er ég búinn að setja myndir inn á síðuna sem ég stofnaði inn á Flickr-vefnum og svo er ég líka búinn að setja myndir inn í eitthvað sem heitir Myndasöfn hér til hliðar.  Hún Vigdís sendi mér í haust fínar myndir frá undirbúningi tónleikanna í Grafarvogskirkju.....þær eru komnar inn! Mjög skemmtilegar myndir.  Ef þið lumið á fleiri myndum þá megið þið endilega senda mér þær eða láta mig hafa þær á geisladiski á næstu æfingu.  Þær fara þá inn á netið.
Valdi - Out

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 15474